BELLADONNUR Á MYSPACE
STAÐREYND DAGSINS!!!
Í Atlanta, Georgíu, BNA, er ólöglegt að binda gíraffa við síma- eða lj&oacut
27.03.2009 17:55:20 / beta

Brilliant spakmæli!!

Lexía 1:
Maður fer í sturtu rétt í þann mund, er konan hans er að ljúka sinni og dyrabjallan hringir.
Konan vefur um sig handklæði og hleypur til dyra.
Hún opnar hurðina og úti stendur Biggi úr næsta húsi.
Áður en henni tekst að koma upp orði segir Biggi:  "Ég gef þér hundraðþúsund ef þú lætur handklæðið falla".
Hún hugsar sig um smá stund og lætur svo handklæðið falla og stendur nakin fyrir framan Bigga.  Eftir nokkrar sekúndur lætur Biggi hana fá hundraðþúsund og fer.
Konan vefur handklæðinu aftur utan um sig og fer aftur inn.
Þegar hún kemur inn á bað spyr eiginmaðurinn:  "Hver var þetta?"
"Þetta var Biggi í næsta húsi", svarar hún.
"Frábært", segir maðurinn, "nefndi hann eitthvað um þessi hundraðþúsund sem hann skuldar mér?"

Boðskapur sögunnar:

Ef þú deilir mikilvægum upplýsingum varðandi lán og áhættu með hluthöfum tímanlega geturðu verið í aðstöðu til að koma í veg fyrir óþarfa afhjúpun


Lexía 2:
Prestur bauð nunnu far.  Hún settist inn og krosslagði fætur, sem varð til að bera fót hennar.
Presturinn missti næstum stjórn á bílnum.  Eftir að hafa náð stjórninni aftur, strauk hann hendinni laumulega upp eftir fæti hennar.
Nunnan sagði þá: "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4".
Presturinn dró að sér hendina, en þegar hann skipti um gír strauk hann hendinni aftur upp eftir fæti hennar.
Aftur segir nunnan:  "Mundu eftir Orðskviðunum 10:4".
Presturinn afsakaði sig og sagði: "Fyrirgefðu systir, holdið er veikt".
Er þau renna í hlað við klaustrið andvarpar nunnan þunglega og fer sína leið.
Þegar presturinn kemur í kirkjuna flettir hann upp Orðskviðunum 10:4.  Þar stóð:  " Snauður verður sá, er með hangandi hendi vinnur,  en auðs aflar iðin hönd".

Boðskapur sögunnar:

Ef þú ert ekki vel upplýstur í starfi þínu gætirðu misst af stórkostlegum tækifærum


Lexía 3:
Sölumaður, ritari og deildarstjóri eru á leið í mat þegar þau finna fornan olíulampa.
Þau nudda lampann og út kemur töfraandi.  Andinn segir: "Ég veiti hverju ykkar eina ósk".
"Ég fyrst!  Ég fyrst!", segir ritarinn.  "Ég vil vera á Bahamaeyjum á hraðbát algerlega áhyggjulaus".  Og púff!  Hún er horfin.
"Næst ég!  Næst ég!", segir sölumaðurinn.  "Ég vil vera á Hawaii að slaka á með einkanuddara og endalausar birgðir af Pina Colada og ástinni minni".  Og púff! Hann er horfinn.
"Allt í lagi, það er komið að þér", segir andinn við deildarstjórann.
Deildarstjórinn segir:  "Ég vil að þessi tvö verði komin aftur á skrifstofuna eftir mat".

Boðskapur sögunnar:

Alltaf láta yfirmanninn tala fyrst.
 
 

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.03.2009 17:44:36 / Rósa

BRUNCH!!!

Sælar :d

Við vorum að spá hvort það væri ekki sniðugt að hittast í brunch nk. sunnudag??? Allavega kemst ég, Laufey og Kristín.....hvað með ykkur hinar?

Við getum auðvitað hist heima hjá einhverri, en svo vorum við samt að spá í að hittast kannski á Vegó í brunch. Eru með alls konar góðgæti á boðstólum í brunch um helgar. Þannig að vonandi komast sem flestar :d

kv. Rósa


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.03.2009 20:24:30 / Rósa

Ferðasaga

Jæja, þá er sko komið að enn einni ferðasögunni…þær hafa nú verið nokkrar í gegnum tíðina, enda erum við allar duglegar við að ferðast vítt og breitt um allar trissur.

Ég, Anna og Peta fórum auðvitað í LOKAferðina okkar til Laufeyjar í Århus og náðum í hana heim til Íslands…semsagt Laufeyin okkar er LOKSINS komin heim til okkar aftur (samt búið að vera fáránlega fljótt að líða). Ferðin hófst með því að Tommi skutlaði okkur öllum þvílíkt ferskum út á Keflavíkurvöll og við vorum svo spenntar fyrir ferðinni að við mættum víst á völlinn áður en allt opnaði í fríhöfninni! Við þurftum nú samt ekki að bíða það lengi og fengum okkur feitan og góðan morgunmat. Svo birgðum við okkur upp af slúðurtímaritum, þar sem markmiðið var að finna sem mest trashy slúðurblöð og óa og æja yfir öllu sem stóð þar.


Punktar úr ferðinni:

·         Okkur var ferjað yfir til Árósa á ca. 140 km hraða og náðum þangað fyrir lokanir á búðum

·         Komumst að því að power shopping er eitthvað sem við erum snillingar í og ættum við eiginlega að skrifa eitt stykki bók um þetta fyrirbæri.

·         Við vorum duglegar að verðlauna okkur fyrir ýmsa hluti….hvítvínsflaska eftir verslunarferð o.s.frv.

·         Belladonnur urðu eiginlega að prímadonnum…þar sem hvítvínsflöskur, þriggja rétta máltíðir og kokteilar urðu að eðlilegum og nauðsynlegum hlut og þótti ekkert tiltökumál.

·         Ekki var aðeins um power shopping að ræða, heldur varð einnig til power cleaning teymi þarna úti og ótrúlegur árangur náðist á skömmum tíma…semsagt var hrikalega mikið power í þessari ferð.

·         Þrifin orskökuðu meðal annars nefblæðingar, útbrot, bjórdrykkju frá hinu ólíklegasta fólki, hlátrasköll og svo kom meira að segja ein okkar út úr skápnum.

·         Eftir þrifin náðist alveg stórskemmtileg mynd af einni donnunni sem er ekki við hæfi að sýna og orsakaði sú myndataka astmakast og nærbuxnaskipti eftir öll hlátrasköllin. Það sem var enn betra var sú staðreynd að eftir allan hláturinn gleymdist að eyða tiltekinni mynd. Um kvöldið á glæsilegu hlaðborði ætlaði þjónninn að taka mynd af okkur saman, en eftir vandræðalega þögn kom í ljós að tiltekin mynd var það eina sem þjónninn gat séð og rétti hann því myndavélina til baka og við hlógum sem aldrei fyrr (og já myndinni var eytt eftir þetta atvik)

·         Íslenskir söngvar voru sungnir víðs vegar um borgina og voru undirtektir áheyrenda mismunandi.

·         H&M græddi heilmikið á þessari ferð okkar og fengum við fólk til að efast um að nokkur kreppa væri á Íslandi.

·         Við komumst að því að Hej så þýðir ekki hey sæta….heldur einfaldlega er þetta sagt til að heilsa fólki….en á meðan við héldum það fengum við þó allavega smá egóbúst

·         Sing star sló algjörlega í gegn hjá okkur og urðu sumir frekar tapsárir og reyndu því að vinna með ýmsum aðferðum.

·         Hárið hjá sumum þoldi ekki alveg allann rakann í loftinu og Monica mætti á svæðið og upphófust björgunaraðgerðir hjá hinum á þessu magnaða hári.

·         Á Römer lenti ein í þeirri áhugaverðu lífsreynslu að ælt var ofan í stígvélið hennar á dansgólfinu….nammi namm

·         Donnur eru með alla danstakta á hreinu og sýndu sko Árósarbúum hvernig á að gera þetta

·         Sumir eiga það alltaf til að finna sósubletti víðs vegar á líkamanum eftir máltíð og á hinum fáránlegustu stöðum

·         Baresso kaffi…..þarf að segja meira

·         Ný regla var sett…..ef einhver okkar flytur út þá munum við hinar alltaf koma út og hjálpa til við að flytja donnuna heim og gera allt þetta ferli auðveldara og skemmtilegra…..

·         Á flugvellinum varð smá misskilningur sem orsakaði það að við tókum Amazing race hlaup á þetta og enduðum allar rennblautar af svita í flugvélinni.

>

Að lokum eru nokkuð fleyg orð eða setningar úr ferðinni:

·         Fusion

·         Hvítir mávar og Undir bláhimni

·         It´s the humidity

·         Ég er svo rök

·         Hvernig gengur

·         Eigum við að ræða þetta

·         Talaru dönsku

·         Er sósa með þessu (sagt með ýktum andlitshreyfingum)

·         Ert ekki í gríninu…gott með þig

·         Hele bene lene skene

·         Whhhhat….whhhere do you get off!

·         Gamle gamle

·         Mangle en pose

·         Hva….er peningurinn búinn!?!

Þannig að frábær ferð í alla staði og vonandi förum við bara bráðlega allar saman í eina svona ferð...

Sé ykkur á miðvikudagskvöldið!!!

kv. Rósa


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2009 16:51:11 / Kristín

Kúkableiur og brjóstagjöf

Jæja fyrir ykkur sem eruð afar áhugasöm um kúkableiur og brjóstagjöf þá koma hérna smá fréttir af okkur:$

Trítill er einstaklega fallegt, rólegt og vel gefið barn (enda ekki langt að sækja það). Svo rólegur að hann lætur ekki vita ef hann er svangur (nema hann sé kannski bara í megrun..) þannig að hann hefur ekkert þyngst og er því í ströngu átaki um að bæta á sig.... Ekki slæmt það ;)

Hann sefur allar nætur og stundum svo mikið að mamman er búin að tjékka ansi oft hvort að bringan lyftist ekki upp og niður, kanna útblástur frá munni og hitstig... já maður er pínu mammaparanoja :haha: Hann allavega sefur alla nóttina og vaknar rétt um 7-8 til að fá sér sopa og sefur svo til hádegis...Sem er nottla mikill kostur fyrir mömmuna sem finnst ekkert betra en að kúra til hádegis. Svo er hann líka snoozari eins og mamma sín og tekur svona ca. 30-60 mín í að vakna:$

Arnar fór að vinna í dag þannig að við erum bara orðin 2 heima á daginn, eða þegar Arnar er að vinna. Trítill varð 3 vikna í gær og ég sé fram á að ég verði að fara undirbúa ferminguna ef ég ætla ekki að verða of sein með e-ð... Tíminn semsagt líður ótrúlega hratt... ég var bara að stíga uppúr baðinu sem hann fæddist í er þaggi annars???

Ég er ennþá að drepast í rófubeininu (enda enn skakkt og líklega brotið) og get ekki enn setið að ráði. En ég er með sérstakann aðstoðarmann (sjúkraþj.) sem fær að nudda á mér bossann reglulega svo ég vona að þetta fari að koma:haha:. Alveg bölvað að vera svona í borunni:lol: Maður semsagt er búinn að missa allt sitt prívasí!!!

Annars erum við bara svo ótrúlega hlessa á hvernig við gátum búið til svona fallegt og heilbrigt barn. Maður bara skilur þetta ekki ;) ég er líka orðin svo spennt að geta farið út að labba með hann og fyrir sumrinu og síðan að geta verið lögleg í barnahittingunum sem við ætlum að vera svo duglegar með í sumar ekki satt!!! Lubbi fluttur heim og Bellos loks allar á sama landinu (Elfa koma svo flytja í bæinn..)

Jæja ætla að ná einni sturtu áður en trítill vaknar.... maður þarf víst að byrja að skiplueggja líf sitt mun betur en áður, maður er jú í öðru sæti núna ;)

Anna, Peta og Rósa góða ferð að ná í Lubba og komiði nú allar heilar heim!

Kossar og knús frá barnauppeldinu.



» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2009 22:36:19 / beta

Nýjasti belladonnumeðlimurinn


Sætastur

Elsku Kristín og Arnar

Enn og aftur innilega til hamingju með þennan líka gullfallega dreng!!

Knús elskurnar mínar
Kv
Stoltustu "frænkurnar" :haha:

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.02.2009 07:08:33 / laufey

Yndislegar dætur mínar:)

Hæ donnur

Ég sit hérna við morgunverðarborðið með dætrum mínum og við erum búnar að vera ræða málin mikið yfir hafragraut og múslí. Þær skiptust á að spyrja mig að allskonar hlutum (auðvitað mikið sem tengist því sem er að gerast hjá okkur pabba þeirra) og ég svaraði eftir bestu getu. Þær höfðu mikinn áhuga á því líka hvort ég ætti nýjan kærasta og sögðu að pabbi þeirra ætti mig alltaf, hann væri bara ekki kærasti minn.... hmmmmm. Þær eru nottla að fá pabba sinn hingað á morgunn og eru mjög spenntar. Þær td lögðu mér lífsreglurnar um það hvernig málunum yrði háttað hérna á meðan hann væri í heimsókn... hvar við eigum að sofa, hvernig við eigum að vera osfrv. Svo héldu þær áfram að spyrja um allt sem tengist því að vera kærustupar..... þessar umræður enduðu svo á því að Silvana andvarpar hátt og segir svo.... "Rosalega er þetta skrýtinn heimur sem guð skapaði fyrir okkur" og svo bætti hún við.... "Og mér finnst líka mjög skrýtið að tvær stelpur geti verið kærustupar"... haha og þá endar Camilla þetta með.... "mér finnst skrýtið hvað kamell (kanill) er svaka sterkur á bragðið" hehe þá var mín að borða kanil með skeið beint uppúr krukkunni... hehe..

Æi mér langaði bara deila þessu momenti með ykkur, þetta var eitthvað svo yndislegt. Þið vitið alveg hvernig þessi moment eru þegar maður horfir bara á börnin sín og skilur ekki hvernig hægt er að elska þau svona mikið:) En jæja, við erum á leiðinni í leikskólann.... mér fannst allt í lagi að setja þetta hérna inn þótt frekar ómerkilegt væri þar sem við erum ekki þær duglegustu á þessari síðu og skemmtilegra að hafa eitthvað heldur en ekkert:)

Eigið góðan dag elskur og hugsum fallega til hennar Elísabetar því hún er 28 ára í dag.... Til hamingju ástin frá okkur bellos!!!!

» 6 hafa sagt sína skoðun

01.02.2009 00:01:42 / laufey

Elsku Anna mín!!!!

Hún á afmæl í dag, hún á afmæl í dag,
hún á afmæl hún Anna, hún á afmæl í dag.
Hún er 22 ár í dag, hún er 22 ár í dag,
hún er 22 ár hún Anna, hún er 22 ár í dag......

Love u, love u, love u
Thínar Laufs og bellos:)

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.01.2009 15:10:14 / beta

Elsku donnur...

það var æðislegt að fá ykkur í heimsókn til mín áðan. Maður er bara orðinn æstur í stjórnmálunum. Vonandi verður ekki of langt í næsta hitting hjá okkur - spurning hver taki næst :)

svo...  er ég orðin alveg svakalega spennt fyrir næsta meðlim í fjölskylduna okkar, finnst hreinlega að ég sé sjálf að fara að eiga hehe :). Kristín mín nú verð ég sko ALLTAF með símann og ef ég get eitthvað hjálpað eða hvað sem er þá bara láta minnas vita, svo ég tali nú ekki um að þú mannst að láta vita þegar allt fer í gang, verð mætt á gluggan á spítalanum um leið.. ;)

Ég er svo alveg á því að við þurfum að taka aftur svona sleepover dæmi hérna hjá mér. Kannski bara þegar ég á afmæli!!

Knús elskurnar mínar.. heyrumst í vikunni.

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.12.2008 19:36:44 / Rósa

JÓLABOÐ!!!

Þá hefur ákvörðun um jólaboð LOKSINS verið tekin....

Eftirfarandi hefur verið ákveðið:
  • Jólaboðið okkar í ár verður eingöngu fyrir okkur stelpurnar

  • Það verður haldið föstudaginn 2. janúar 2009
  • Staðsetning er heima hjá mér
  • Við byrjum nokkuð snemma þar sem við borðum allar saman
  • Skylda að mæta með náttföt eða kósý föt 
                                     
  • Blandaðir verða stelpukokteilar
  • Mögulega horft á eitthvað skemmtilegt
  • Kannski verður tekið eitt party og co
  • Mikið verður slúðrað
  • Pakkaleikur fyrir okkur stelpurnar....pakki fyrir 2500 kr
  • Beta mætir með uppblásna dýnu
Fleiri hugmyndir vel þegnar og svo bara spilum við þetta af fingrum fram :haha:
Ég allavega get ekki beðið eftir að hitta ykkur og eiga með ykkur skemmtilegt stelpukvöld ;)

kv. Rósa


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.12.2008 13:26:41 / Rósa

AMMÆLI

Þetta átti auðvitað að koma inn hérna í gær en síðan var eitthað að klikka og því kemur þetta núna ;)

Elsku besta Laufey okkar.....innilega til hamingju með afmælið þitt í gær.
Þú ert auðvitað unglambið í hópnum en núna ertu loksins orðin fullorðin eins og við hinar (komin nær þrítugu en tvítugu) múúúhahahha. En eins og skáldið sagði:

It´s better to be over the hill then to be buried under it :haha:
                    
En vonandi áttiru alveg yndislegan afmælisdag og skemmtir þér vel...þú átt það sko innilega skilið.

Svo gerast auðvitað ótrúlegir hlutir annað kvöld, en þá kemuru loksins heim til okkar. Það verður alveg hrikalega gott að sjá þig og fá að knúsa þig annað kvöld.

þúsund kossar og knús

þínar, Belladonnur


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2008 20:36:55 / Rósa

KAFFIHÚS!!!

Elsku bestu donnur nær og fjær....á reyndar meira við um þær sem eru nær en það má alltaf vona að þið sem eruð fjær komið okkur á óvart og mætið hehehehe

Nú er sko komið að langþráðum kaffihúsahitting...OG HANA NÚ :d Núna styttist í jólin og það verður sífellt minna um tíma fyrir hittinga og því heimta ég hér með hitting í vikunni.

Ég er laus á mánudags-, miðvikudags-, fimmtudags- og föstudagskvöld....það er því nóg um valmöguleika. Hér með bið ég um að þið setjið þann dag sem hentar ykkur best í komment og við förum á þeim degi sem flestar komast. Ég allavega mun tylla mér á kaffihús og vona bara til guðs og englana að ég sitji ekki einsömul og að ég fái að minnsta kosti eina donnu með mér ;)

                                                            

Hlakka allavega hrikalega mikið til að hitta ykkur (vonandi sem flestar) í vikunni...

kv. Rósa
 


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.12.2008 10:39:48 / laufey

Dick in a box!!

Justin aldrei verið meira sexy...

http://www.youtube.com/watch?v=WhwbxEfy7fg

Er að fara í próf á mánudaginn.... skrifa hér eftir það:)

Love,
Laufey

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.12.2008 11:57:25 / Petrea

Afmælisstelpa

Hún elsku Kristín okkar á afmæli í dag, innilega til hamingju með daginn elsku besta bumbulínan okkar, vona að þú njótir dagsins og látir stjana við þig. WE LOVE YOU...
hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Kristín hún á afmæli í dag :haha: :haha: :haha: :haha:

ps. sorry kann ekki að setja inn myndir tilað gera þetta skemmtilegra :$...


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2008 11:26:53 / Anna

Gissur 30 í dag :)

Hann Gissur á afmæli í dag og við Belladonnur óskum honum og Rósu sætu tilhamingju  með daginn
:)

Rosa fín mynd af honum í DV :)

KV Belladonnur

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.12.2008 13:49:07 / Petrea

bara matartal!!!

ég fékk að heyra það hjá einum dyggum lesanda að það væri alltaf bara matartal inná síðunni!!! Getur það verið stelpur??? Tölum við bara um mat - All the time... jú kannski ég og Laufey :lol: En það hefur bara ekkert gerst hérna svo lengi að það er komin tími á uppdate. Ég er sem sagt týnd og búin að vera týnd í nokkurn tíma í vinnu, verkefnum, skilum, prófundirbúningi, burðarþoli, vinnu  og meiri prófundirbúningi, vinnu og svo próflestri, próftöku og skilum, vinnu og meiri lestri og ...já þið kannist allar við þetta held ég :$ En þetta tekur víst allt enda þann 11 des. og hefst þá vinnan að fullum krafti þangað til að ég skelli mér norður til ma og pa í jólasælu :haha: guð get ekki beðið... annað er nú ekki meira hér á bæ..... Hvað með ykkur hinar???

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 58
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 228796
Leitarbox